Gordjöss í Köben?
07 / 12 / 2010
Páll Óskar og helstu Eurovisionstjörnur Íslands munu koma saman þann 5. maí á hinu stórglæsilega tónleikahúsi Circus í Kaupmannahöfn.
Lúðrasveit mun taka á móti gestum við innganginn og síðan verður boði upp á þriggja rétta máltíð. Páll Óskar mun taka lagið og sjá um að kynna Eurovisionstjörnurnar á svið en hópurinn samanstendur af: Stebba & Eyfa, Björgvin Halldórsson, Siggu Beinteins, Heru Björk, Jóhönnu Guðrúnu, Selmu Björns, Fridrik Ómar, Regínu Ósk, Sigrúnu Evu og Icy-hópnum. Eftir það verður dansleikur og stanslaust stuð til kl. 02.00 þar sem Páll Óskar sér um tónlistina og heldur uppi fjörinu eins og honum er einum lagið.
Íbúðir í Kaupmannahöfn
Flug til Kaupmannahafnar